ÚTGÁFA 1.4 · Í GILDI FRÁ 01.10.2026

Skilmálar
og kaupin.

Allt sem gildir þegar þú kaupir miða hjá BeThere.

Skilmálar þessir gilda um öll kaup og pöntun á þjónustu hjá BeThere ehf. og teljast hluti af samningi milli aðila í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga.

1. Seljandi og gildissvið

BeThere er íslensk miðaþjónusta sem útvegar miða á íþróttaviðburði, tónleika og aðra stórviðburði erlendis.

Seljandi: BeThere ehf., kt. 540926-1070, Kringlan 7, 103 Reykjavík. Netfang: midar@bethere.is.

Skilmálarnir gilda um allar pantanir sem gerðar eru á bethere.is.

2. Umfang þjónustu og eðli milligöngu

BeThere miðlar og selur aðgöngumiða á viðburði. Flug, gisting, akstur til og frá viðburðarstað eða önnur ferðaþjónusta er ekki innifalin nema um það hafi sérstaklega verið samið skriflega.

Í sumum tilvikum er BeThere sjálfstæður seljandi miðans en í öðrum tilvikum kemur félagið fram sem milligönguaðili eða umboðsaðili fyrir útgefanda eða birgja. Í samræmi við 5. gr. og 6. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga eru upplýsingar um réttarstöðu félagsins í hverju tilviki, þar á meðal um auðkenni raunverulegs seljanda og hvort greiðsla sé móttekin í eigin nafni eða fyrir hönd þriðja aðila, veittar áður en gengið er frá pöntun og áréttaðar í pöntunarstaðfestingu.

BeThere er sjálfstæður þjónustuaðili og hvorki eigandi vallar, mótshaldari, íþróttafélag né opinber samstarfsaðili þeirra nema annað sé sérstaklega tekið fram.

3. Aldursskilyrði og ábyrgð pöntunaraðila

Pöntunaraðili verður að hafa náð 18 ára aldri og vera lögráða.

Þegar pantaðir eru miðar fyrir fleiri en einn einstakling gengst kaupandi undir skilmála þessa fyrir hönd allra skráðra miðahafa í pöntuninni og ber ábyrgð á að kynna þeim efni þeirra. Kaupandi ber jafnframt óskipta ábyrgð á heildargreiðslu pöntunarinnar.

4. Skráning miðahafa og persónuskilríki

Sé pantaður fleiri en einn miði er áskilið að gefið sé upp fullt nafn hvers miðahafa. Viðburðahaldarar og vallarstjórnir krefjast þess í mörgum tilvikum að nafn á aðgöngumiða samsvari skilríkjum handhafa við inngang.

Kaupandi ber fulla ábyrgð á því að nöfn miðahafa séu rétt skráð. Rangt eða ónákvæmt nafn getur leitt til þess að handhafa sé synjað um aðgang að viðburði án þess að bóta- eða endurgreiðsluábyrgð skapist af hálfu BeThere.

5. Pöntunarferli

  1. Kaupandi velur viðburð, tilgreinir fjölda aðgöngumiða og sendir pöntun í gegnum vefsíðu félagsins.
  2. BeThere kannar framboð hjá viðurkenndum birgjum og sendir kaupanda skriflega staðfestingu eða tilboð í tölvupósti.
  3. Pöntun telst bindandi samningur þegar skrifleg staðfesting hefur verið send af hálfu BeThere. Upplýsingar um verð og framboð á vefsíðu eru veittar með fyrirvara um staðfestingu.

BeThere áskilur sér rétt til að hafna pöntun, meðal annars ef um ófyrirséðar birgðaþurrðir er að ræða, ef verð á vef var augljóslega rangt eða ef afgreiðsla til viðkomandi er óheimil samkvæmt skilmálum þessum.

6. Verð og greiðsla

Öll verð eru tilgreind í íslenskum krónum og fela í sér virðisaukaskatt í samræmi við lög nr. 50/1988 um virðisaukaskatt eftir því sem við á um miðasölu á viðburði erlendis.

Verðið sem stendur í staðfestingunni er fullnaðarverð. Engin þjónustugjöld eða afgreiðslugjöld bætast við eftir á.

Greitt er við pöntun með greiðslukorti í gegnum greiðslusíðu Teya. BeThere staðfestir miðann hjá birgja eftir að greiðsla hefur borist.

Fáist miðinn ekki endurgreiðir BeThere kaupanda að fullu, á sama greiðslukort, sbr. 8. og 11. grein.

7. Afhending miða

Miðar eru afhentir rafrænt á það netfang sem kaupandi tilgreinir við pöntun, nema um annað sé samið. Hluti miða berst skömmu fyrir viðburð, allt fram á viðburðardag, sem telst eðlilegt í alþjóðlegri miðamiðlun.

Sumir viðburðir nota miða sem sóttir eru á staðnum eða í appi mótshaldara. Þá fylgja leiðbeiningar með staðfestingunni.

Kaupandi ber fulla ábyrgð á því að gefa upp rétt netfang og fylgjast með pósthólfi sínu, þar með töldum ruslpósti.

8. Sæti og staðsetning

Við pöntun er tilgreindur miðaflokkur eða svæðaskipting. Nákvæm sætisnúmer liggja alla jafna ekki fyrir fyrr en við endanlega afhendingu miða.

Reynist pöntuð sæti ekki tiltæk áskilur BeThere sér rétt til að útvega sæti í sama eða hærri verðflokki. Geti félagið ekki útvegað sambærileg eða betri sæti og kaupandi hafnar boðnum valkostum á kaupandi rétt á fullri endurgreiðslu í samræmi við 11. grein.

Miðar fyrir hóp eru ekki alltaf hlið við hlið nema það sé sérstaklega staðfest.

9. Breytingar á dagsetningu og leiktíma

Dagsetningar og leiktímar í fótbolta breytast reglulega, oftast vegna sjónvarpsútsendinga, og það getur gerst með stuttum fyrirvara.

Á vefsíðu BeThere eru sérstaklega tilgreindir þeir leikir þar sem dagsetning eða leiktími er óstaðfestur. Miði sem keyptur er á slíkan viðburð gildir á viðkomandi leik óháð því hvenær hann fer fram.

Breyting á dagsetningu eða leiktíma gefur ekki rétt á endurgreiðslu. Við berum ekki ábyrgð á flugi, gistingu eða öðrum kostnaði sem þú hefur lagt í vegna breytingarinnar. Við mælum eindregið með sveigjanlegum bókunum og ferðatryggingu.

10. Niðurfelling, frestun eða breyting á viðburði

  • Aflýst án nýrrar dagsetningar: kaupandi á rétt á endurgreiðslu miðaverðs samkvæmt 11. grein.
  • Frestað eða flutt á nýja dagsetningu: miðinn gildir á nýju dagsetninguna. Endurgreiðsla er þá háð reglum mótshaldarans.
  • Fyrir luktum dyrum eða áhorfendafjöldi skertur: falli miði niður á kaupandi rétt á endurgreiðslu miðaverðs.
  • Úrslit, frammistaða liða, leikmenn sem spila eða spila ekki: gefur aldrei rétt á endurgreiðslu.

Í öllum tilvikum nær endurgreiðslan til verðs miðans. Hún nær ekki til flugs, gistingar eða annars kostnaðar.

11. Endurgreiðslur

Þegar skilyrði endurgreiðslu eru uppfyllt er fjárhæðin endurgreidd innan 48 klukkustunda frá því að endanleg staðfesting og uppgjör berst frá birgja, með sama greiðslumáta og notaður var við upphafleg kaup.

Í tilteknum tilvikum er endurgreiðsla háð staðfestingu og skilum frá útgefanda miða. BeThere upplýsir kaupanda um framvindu slíkra mála.

12. Afbókun

Aðgöngumiðar á viðburði eru óafturkræfir. Kaupandi getur hvorki afbókað né krafist endurgreiðslu eftir að pöntun hefur verið staðfest, nema annað leiði beint af 10. grein.

Athygli er vakin á því að almennur 14 daga réttur neytenda til að falla frá fjarsölusamningi á ekki við um kaup á miðum á viðburði sem bundnir eru við tiltekna dagsetningu eða tímabil, sbr. j-lið 1. mgr. 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.

Komi upp ófyrirséðar sérstakar aðstæður er viðskiptavinum bent á að hafa samband við BeThere sem leitast við að meta aðstæður eftir atvikum.

13. Umgengnisreglur og skilmálar viðburðahaldara

Aðgöngumiðar eru háðir gildandi skilmálum og umgengnisreglum viðkomandi leikvangs og viðburðahaldara sem kaupandi og miðahafar gangast undir við kaup.

Þetta þýðir meðal annars:

  • Handhafar miða skulu ætíð hlíta fyrirmælum starfsfólks og öryggisgæslu á viðburðarstað.
  • Stuðningsmenn eru aðskildir. Miði í heimastúku er ekki fyrir stuðningsmenn gestaliðsins. Að klæðast búningi gestaliðsins, fagna marki þeirra eða sýna með öðrum hætti stuðning við gestaliðið í heimastúku getur þýtt brottvísun af leikvangi án réttar til endurgreiðslu samkvæmt reglum viðburðahaldara.
  • Óviðeigandi eða ógnandi hegðun, ölvun, kynþáttaníð og hvers kyns mismunun leiðir til brottvísunar án endurgreiðslu.
  • Bann við að fara inn á leikvöllinn, við reyk og flugeldum, og við að taka upp og senda út efni frá viðburðinum í atvinnuskyni.

Brottvísun samkvæmt reglum vallarins gefur aldrei rétt á endurgreiðslu.

14. Notkun miðans og bann við endursölu

Miðinn er persónulegur og eingöngu til eigin nota.

Kaupanda og miðahafa er óheimilt að:

  • selja miðann áfram, bjóða hann til sölu eða framselja hann gegn endurgjaldi,
  • setja hann á endursölusíður eða uppboðsvefi,
  • nota hann í happdrætti, keppni, kynningu eða sem hluta af pakka í atvinnuskyni,
  • kaupa miða í atvinnuskyni eða til endursölu.

Óheimil endursala er brot á þessum skilmálum og getur auk þess verið ólögleg þar sem viðburðurinn fer fram. Miði sem er seldur áfram í óleyfi verður ógildur og enginn réttur til endurgreiðslu myndast.

BeThere áskilur sér rétt til að fella niður pöntun og stöðva viðskipti ef rökstuddur grunur leikur á að kaup fari fram í endursöluskyni eða í atvinnuskyni.

15. Takmarkanir á sölu og afhendingu

Sumir aðgöngumiðar eru háðir landfræðilegum sölutakmörkunum eða skilyrðum sem sett eru af viðburðahaldara eða útgefanda miða.

Falli pöntun undir slíkar takmarkanir er henni hafnað og greiðsla endurgreidd að fullu í samræmi við gildandi sölureglur útgefanda.

BeThere selur eingöngu aðgöngumiða til einstaklinga til eigin nota en ekki til aðila í endursöluskyni.

16. Ábyrgð

BeThere ábyrgist að veita faglega milligöngu og afhenda staðfesta aðgöngumiða í samræmi við gerða samninga.

BeThere ber ekki bótaábyrgð á eftirfarandi þáttum:

  • flugi, gistingu, ferðakostnaði eða öðrum útgjöldum kaupanda vegna viðburðarins,
  • breytingum á dagsetningu, leiktíma eða staðsetningu sem mótshaldari ákveður,
  • framkvæmd viðburðarins sjálfs, aðstöðu á vellinum eða atvikum þar,
  • atburðum sem teljast til óviðráðanlegra atvika (force majeure), svo sem óveðri, verkföllum, samgöngutruflunum, farsóttum eða ákvörðunum stjórnvalda.

Heildarskaðabótaábyrgð BeThere vegna sérhverrar pöntunar takmarkast við þá heildarfjárhæð sem greidd var fyrir viðkomandi pöntun, að því marki sem slík takmörkun er heimil samkvæmt lögum. Ekkert í skilmálum þessum takmarkar eða fellir niður ábyrgð sem óheimilt er að takmarka gagnvart neytendum samkvæmt ófrávíkjanlegum lagaákvæðum, þar á meðal 36. gr. og 36. gr. a laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, eða ábyrgð vegna líkamstjóns, stórfellds gáleysis eða sviksamlegrar háttsemi.

17. Kvartanir

Komi upp ágallar á þjónustu skal kaupandi beina skriflegu erindi án tafar til BeThere á netfangið midar@bethere.is.

Varði kvörtun framkvæmd viðburðar eða aðstöðu á vettvangi er áríðandi að kvörtun sé komið á framfæri við starfsfólk á staðnum svo unnt sé að staðreyna málsatvik.

BeThere leitast við að svara erindum án tafar og kemur þeim áfram til útgefanda miða eftir því sem við á.

Náist ekki samkomulag um lausn ágreinings er neytanda bent á rétt sinn til að beina kvörtun til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

18. Persónuvernd

BeThere vinnur allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sbr. nánari útlistun í persónuverndarstefnu félagsins.

Til að unnt sé að afhenda miða eru nauðsynlegar upplýsingar um miðahafa og pöntun miðlaðar til viðkomandi útgefanda eða birgja, þar á meðal aðila utan Evrópska efnahagssvæðisins í samræmi við persónuverndarstefnu félagsins.

Skráning á póstlista er valkvæð og geta viðskiptavinir afskráð sig hvenær sem er.

19. Breytingar á skilmálum

BeThere áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála þessa. Um sérhverja pöntun gildir sú útgáfa skilmála sem í gildi var við staðfestingu hennar og fylgdi pöntunarstaðfestingu til kaupanda.

20. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa og samningssamband aðila gilda íslensk lög. Mál sem rísa kunna vegna samningsins má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í samræmi við lög nr. 91/1991 um meðferð einkamála, með fyrirvara um ófrávíkjanleg lagaákvæði um varnarþing neytenda.

21. Gjafabréf

Gjafabréf BeThere er inneign sem nota má upp í kaup á miðum á bethere.is. Það gildir í fjögur ár frá útgáfudegi og gildistíminn stendur á bréfinu.

Gjafabréf má nota oftar en einu sinni þar til inneignin er uppurin og afgangur geymist á kóðanum. Dugi inneignin ekki fyrir kaupum greiðir kaupandi mismuninn með greiðslukorti. Inneign er ekki greidd út í peningum.

Kaupandi getur fallið frá kaupum á ónotuðu gjafabréfi innan 14 daga frá kaupum, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, og fær þá endurgreitt á sama greiðslukort. Beiðni sendist á midar@bethere.is. Eftir að gjafabréf hefur verið notað að hluta eða öllu leyti fellur sá réttur niður.

Verði pöntun sem greidd var með gjafabréfi endurgreidd fer sá hluti sem greiddur var með gjafabréfi aftur á gjafabréfið og sá hluti sem greiddur var með korti á kortið.

Handhafi gjafabréfs ber ábyrgð á að varðveita kóðann. Leiki grunur á að óviðkomandi hafi kóðann skal hafa samband á midar@bethere.is; ónotuð inneign er þá fryst eða flutt á nýjan kóða sé þess kostur.

Persónuvernd