PERSÓNUVERND

Gögnin
þín.

Hvaða gögn við geymum, hvaða við geymum ekki, og hverjum við miðlum þeim.

Hver ber ábyrgð

Ábyrgðaraðili er BeThere ehf., kt. 540926-1070, Kringlan 7, 103 Reykjavík. Beiðnir og spurningar um persónuupplýsingar sendist á midar@bethere.is.

Hvaða upplýsingar við geymum

  • Um þig: nafn, netfang, símanúmer (valfrjálst) og það sem þú skrifar í athugasemd.
  • Nöfn miðahafa: séu miðarnir fleiri en einn getur þú skráð nöfn hinna. Það er valfrjálst í fyrirspurn og skylda við kaup, því margir vellir krefjast þess að nafnið á miðanum passi við þann sem mætir. Ekkert annað um samferðafólkið er geymt, hvorki netfang né sími.
  • Vegabréfsupplýsingar: á leikjum þar sem félagið krefst þess (leikir á Spáni og í Meistaradeildinni) vegabréfsnúmer, fæðingardagur og þjóðerni hvers miðahafa. Hvergi annars staðar.
  • Um kaupin: viðburðurinn, svæðið, fjöldinn, verðið sem stóð á skjánum og hvenær þú samþykktir skilmálana og hvaða útgáfu þeirra.
  • Landið: tveggja stafa landskóði sem hýsingaraðilinn leiðir af IP-tölunni (sjá næsta kafla). IP-talan sjálf er hvergi geymd.
  • Hvaðan þú komst: auglýsingamerkin í hlekknum sem þú smelltir á (utm), vefurinn sem vísaði þér til okkar og fyrsta síðan sem þú opnaðir, geymt með fyrirspurninni eða pöntuninni. Með samþykki fyrir markaðssetningu líka smellinúmer auglýsinganets og auðkenni vafrans hjá Meta og TikTok (sjá kaflann Mælingar og auglýsingar).

Nöfn miðahafa og vegabréfsupplýsingar fara aldrei í slóðir, loggskrár eða aðgerðaskrá okkar; þau eru geymd með fyrirspurninni eða pöntuninni einni.

Tilgangur og lagagrundvöllur

  • Að svara fyrirspurn, útvega miðann og efna kaupin: vinnslan er nauðsynleg til að efna samning við þig eða gera ráðstafanir að þinni beiðni áður en samningur er gerður.
  • Nöfn miðahafa og vegabréfsupplýsingar: nauðsynleg til að efna samninginn, því útgefandi miðans krefst þeirra.
  • Landið: lögmætir hagsmunir okkar af því að virða samningsbundnar sölutakmarkanir birgja.
  • Bókhald: lagaskylda (lög um bókhald nr. 145/1994).
  • Póstlisti: samþykki, sem þú gefur sjálf(ur) með hakinu og getur dregið til baka hvenær sem er.
  • Áminning: ef þú byrjar pöntun en klárar ekki getum við sent þér einn póst til að minna á hana.
  • Vistað og Vaktin: ef þú vistar viðburð og biður um það (og staðfestir netfangið) sendum við þér póst ef miðar fara að klárast, verðið lækkar eða viðburðurinn nálgast; afskráning fylgir hverjum pósti.
  • Nafnlaus tölfræði um notkun vefsins: lögmætir hagsmunir okkar af því að vita hvað er skoðað og hvaðan fólk kemur. Engin kaka, engar persónuupplýsingar, og þú getur hafnað henni í kökuborðanum.
  • Auglýsingamæling og endurmarkaðssetning: samþykki, sem þú gefur í kökuborðanum og getur dregið til baka hvenær sem er.

Biðjir þú um að fá að vita þegar miðar á leik koma í sölu geymum við netfangið þitt, leikinn og tímastimpil skráningarinnar, ekkert annað. Þeirri línu er eytt 30 dögum eftir að pósturinn er sendur, um leið og þú afskráir þig með hlekknum í póstinum, eða daginn eftir leikinn hafi miðarnir aldrei komið í sölu. Fari pósturinn út skráum við aðeins að hann hafi verið sendur og hvenær, án netfangsins sjálfs.

Landið þitt

Við lesum í hvaða landi beiðnin þín er upprunnin til þess eins að virða samningsbundnar sölutakmarkanir birgja okkar, sem banna sölu tiltekinna miða í tilteknum löndum. IP-talan sjálf er hvergi geymd. Tveggja stafa landskóðinn sem er leiddur af henni er geymdur með fyrirspurninni eða pöntuninni jafn lengi og hún sjálf, svo við getum síðar svarað því hvort sölutakmörkun birgja hafi verið virt.

Landskóðinn kemur frá hýsingaraðila vefsins, sem leiðir hann af IP-tölunni áður en beiðnin berst okkur. Sé beiðni stöðvuð vegna sölutakmörkunar geymum við hana ekki. Þá skráum við aðeins landið, leikinn og regluna sem átti við í aðgerðaskrá okkar, hvorki nafn þitt né netfang.

Vinnsluaðilar og miðlun

Við notum þjónustuaðila sem vinna gögnin fyrir okkur og aðeins samkvæmt okkar fyrirmælum:

  • Hýsing vefsins: keyrir vefinn og leiðir landskóðann af IP-tölunni.
  • Gagnagrunnur: geymir fyrirspurnir og pantanir, á vefþjónum innan Evrópska efnahagssvæðisins (Írlandi).
  • Tölvupóstur: sendir staðfestingar og svör á netfangið þitt.
  • Greiðslumiðlun: tekur við greiðslunni. Kortanúmer fara aldrei um vefinn okkar og eru hvergi geymd hjá okkur.
  • Tölfræði: hýsingaraðilinn (Vercel Web Analytics og Speed Insights) telur heimsóknir og mælir hraða síðna án köku og án þess að þekkja þig.
  • Upptökur af heimsóknum (aðeins með samþykki): PostHog Inc. geymir upptökurnar á vefþjónum innan Evrópusambandsins (Frankfurt). Sjá kaflann Mælingar og auglýsingar.

Hýsing og tölvupóstsending geta farið um vefþjóna utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Til að útvega miðann sendum við nöfn miðahafa, vegabréfsupplýsingar þar sem félagið krefst þeirra og upplýsingar um pöntunina til þess sem gefur miðann út. Sumir birgjar okkar eru utan Evrópska efnahagssvæðisins; þá er aðeins sent það sem þarf til að gefa miðann út.

Við seljum engum persónuupplýsingar. Auglýsinganetum miðlum við aðeins því sem lýst er í kaflanum Mælingar og auglýsingar, og aðeins með þínu samþykki.

Mælingar og auglýsingar

Tölfræði (sjálfgefið á, engin kaka). Við skráum nafnlaust hvaða síður, lið, leikir og miðalínur eru skoðuð, hvaðan heimsóknin kom (auglýsingamerki og vefurinn sem vísaði á okkur), gerð tækis og land. Heimsóknin fær slembinúmer sem vafrinn geymir aðeins meðan flipinn er opinn. Engin IP-tala, ekkert nafn og ekkert netfang fer í þessa skrá og hún er aðeins notuð í samanteknar tölur. Hafnir þú tölfræði er ekkert skráð.

Upptökur af heimsóknum (aðeins með samþykki fyrir tölfræði). Samþykkir þú tölfræði í kökuborðanum tökum við upp hvernig vefurinn er notaður (smellir, skrun og hvaða síður eru opnaðar) með PostHog, til að sjá hvar hann er óskýr og hvar kaup stranda. Allt sem þú slærð inn er falið í upptökunni, og í kaupforminu og á síðum með persónuupplýsingum er textinn falinn líka. Greiðslan og greiðslugluggi Teya eru aldrei tekin upp, og heldur ekki stjórnborð okkar. Ekkert nafn, netfang eða símanúmer fer til PostHog og upptakan er ekki tengd þér. PostHog setur enga köku: auðkenni heimsóknarinnar er í geymslu flipans og hverfur þegar honum er lokað. Upptökum er eytt sjálfkrafa eftir einn mánuð. Hafnir þú tölfræði hleðst PostHog aldrei.

Markaðssetning (aðeins með samþykki). Samþykkir þú hleðst Meta Pixel (Facebook og Instagram), TikTok Pixel og Google Ads á vefinn. Þau setja kökur og fá að vita hvaða leiki og viðburði þú skoðar, velur og kaupir, svo hægt sé að sýna þér auglýsingar um þá og mæla hvort auglýsingar skila sölu. Við kaup og fyrirspurn sendum við þeim líka upplýsingarnar frá vefþjóni okkar, með netfangi og símanúmeri sem eru hössuð (dulkóðuð í eina átt) áður en þau fara. Án samþykkis hleðst ekkert af þessu og ekkert er sent.

  • Meta Platforms Ireland Ltd.: Meta Pixel og Conversions API. Kökur `_fbp` og `_fbc`, 90 dagar.
  • TikTok Technology Limited (Írlandi): TikTok Pixel og Events API. Kaka `_ttp`, 13 mánuðir.
  • Google Ireland Limited: Google Ads. Kökur `_gcl_au` og `_gcl_aw`, 90 dagar.

Þessi fyrirtæki bera sjálf ábyrgð á því sem þau gera við gögnin eftir að þau berast þeim, og þau geta flutt þau til Bandaríkjanna á grundvelli gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework).

Hvernig þú hafnar eða skiptir um skoðun. Kökuborðinn birtist við fyrstu heimsókn með Samþykkja, Hafna og Stillingar. Þú getur alltaf breytt valinu með Kökustillingar neðst á hverri síðu. Sért þú hætt(ur) við markaðssetningu eyðum við kökum auglýsinganetanna úr vafranum og ekkert er sent eftir það.

Láttu mig vita

Þegar þú skráir þig á „Láttu mig vita" á síðu liðs, deildar, íþróttar eða viðburðar geymum við netfangið þitt, hvað þú valdir, hvenær þú samþykktir og á hvaða síðu (ásamt auglýsingamerkjum heimsóknarinnar, ef einhver voru). Tilgangur: að senda þér póst um miða á það sem þú valdir. Grundvöllur: samþykki þitt, gefið með haki sem er aldrei forhakað og staðfest með hlekk í pósti; án staðfestingar sendum við ekkert annað. Varðveisla: þar til þú afskráir þig, með hlekknum sem fylgir hverjum pósti. Listanum er ekki deilt með auglýsinganetum.

Kosning um Viðburð vikunnar

Þegar þú kýst um viðburð næstu viku geymum við atkvæðið með hassi af tækjaköku (`bt_kosning`, aldrei IP-töluna sjálfa) svo hvert tæki kjósi einu sinni á viku. Gefir þú netfang til að fá leikinn klukkutíma á undan öðrum notum við það aðeins fyrir þann eina póst þá vikuna. Ef þú hakar við „Já, sendið mér tilboð á mínum liðum" (aldrei forhakað) fer netfangið á markaðslistann okkar með liðunum sem þú kaust, ásamt tímanum og orðréttum textanum sem þú samþykktir. Tilgangur: tilboð á þínum liðum. Grundvöllur: samþykki þitt. Varðveisla: þar til þú afskráir þig, með hlekknum í hverjum pósti. Listanum er ekki deilt með öðrum.

Vafrakökur og geymsla í vafranum

  • `bt_session` (kaka, nauðsynleg): heldur utan um valið þitt í sólarhring þegar þú byrjar að velja miða.
  • `bt_samthykki` (geymsla vafrans, nauðsynleg): valið þitt í kökuborðanum, svo hann spyrji ekki aftur. Þar til þú breytir því.
  • `bt_sid` og `bt_uppruni` (geymsla flipans, tölfræði): slembinúmer heimsóknarinnar og hvaðan hún kom. Hverfa þegar flipanum er lokað. Ekki sett ef þú hafnar tölfræði.
  • `bt_prof` (geymsla vafrans): aðeins í tækjum starfsfólks BeThere, merkir prófanir svo þær telji ekki í tölfræðinni.
  • `bt_admin_vafri` (kaka, 30 dagar): aðeins í vöfrum starfsfólks BeThere sem hafa opnað stjórnborðið. Heimsóknir þeirra teljast ekki í tölfræðinni og eru aldrei teknar upp.
  • `ph_…_posthog` og `bt_ph_val` (geymsla flipans, aðeins með samþykki fyrir tölfræði): auðkenni heimsóknarinnar hjá PostHog og hvort hún er tekin upp. Hverfa þegar flipanum er lokað.
  • `bt_fyrsta` (kaka, 30 dagar, aðeins með samþykki fyrir markaðssetningu): hvaðan fyrsta heimsóknin kom (auglýsingamerki, vefurinn sem vísaði á okkur og fyrsta síðan), svo við sjáum hvaða auglýsing skilaði kaupum sem eru gerð seinna. Ekkert nafn, netfang né smellinúmer. Eytt um leið og þú dregur samþykkið til baka.
  • Kökur auglýsinganetanna (markaðssetning): aðeins með samþykki, sjá kaflann á undan.

Hversu lengi

  • Pantanir og greiðslugögn: sjö ár frá lokum reikningsárs, eins og lög um bókhald krefjast.
  • Fyrirspurnir sem verða ekki að pöntun: í allt að 24 mánuði frá síðustu samskiptum, svo við getum svarað framhaldi, og skemur ef þú biður um eyðingu.
  • Póstlisti: þar til þú afskráir þig.
  • Vaktin „Láta mig vita": sjá kaflann um tilgang hér að ofan.
  • Nafnlausa tölfræðin: 13 mánuðir, síðan er henni eytt sjálfkrafa.
  • Upptökur af heimsóknum: einn mánuður hjá PostHog, síðan eytt sjálfkrafa.
  • Hvaðan þú komst: jafn lengi og fyrirspurnin eða pöntunin sem það fylgir.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og fá afrit af þeim, að fá þær leiðréttar, að fá þeim eytt, að takmarka vinnslu þeirra, að andmæla henni og að fá þær afhentar á tölvutæku formi. Samþykki (póstlistinn, markaðssetning) má draga til baka hvenær sem er, markaðssetninguna með Kökustillingar neðst á síðunni. Sendu beiðni á midar@bethere.is og við svörum innan mánaðar.

Sértu ósátt(ur) við hvernig við förum með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.

Skilaboð á Facebook og Instagram

Þegar þú sendir BeThere skilaboð eða athugasemd á Facebook Messenger eða Instagram tökum við við skilaboðunum, nafni þínu eða notandanafni og tímanum, svo við getum svarað þér. Við geymum samtalið eins lengi og þarf til að sinna erindinu og eyðum því svo. Þú getur beðið um eyðingu á midar@bethere.is.

Útgáfa

Þessi stefna fylgir skilmálum BeThere, útgáfu 1.4 frá 01.10.2026. Breytist eitthvað fær það nýtt útgáfunúmer, og pöntun heldur alltaf þeirri útgáfu sem hún var samþykkt á.

Stefnan var síðast uppfærð 5. nóvember 2026.

Skilmálar